Þú hallar þér líklega daglega að skjánum til að lesa textann eða sjá myndefnið. En vissirðu að það að horfa svona nálægt á skjáinn tímunum saman getur þreytt augun, valdið höfuðverk og jafnvel hálsverkjum? Því er nauðsynlegt að halda réttri fjarlægð milli þín og skjásins til að auka afköst og vernda augun.
Þessi grein sýnir mikilvægi réttrar fjarlægðar frá skjánum og hvernig þú getur skapað fullkomna vinnuvistfræðilega vinnustöð sem tryggir þægindi og vellíðan.
Af hverju skiptir fjarlægð frá skjá máli?
Rétt fjarlægð frá skjánum er nauðsynleg fyrir vinnuvistfræðilega uppsetningu svo þú lendir ekki í eftirfarandi heilsufarsáhættu:
Augnþreyta
Langur skjátími veldur slæmu tölvusjónheilkenni. Þá getur þú líka fundið fyrir þokusýn og höfuðverk.
Álag á vöðva og stoðkerfi
Að nota skjáinn í slæmri líkamsstöðu veldur verkjum í hálsi og öxlum og getur valdið miklum óþægindum.
Heilsa til langs tíma
Almenn heilsa þín verður líka fyrir áhrifum þegar líkamsstaðan fer að versna.
Kostir kjörfjarlægðar
Rétt fjarlægð bætir einbeitingu, eykur afköst og tryggir þægindi.
Kjörfjarlægð frá skjá

Það er lykilatriði fyrir afkastamikið og þægilegt vinnusvæði að ná tökum á réttri fjarlægð frá skjánum. Því ættirðu að fylgja almennu þumalputtareglunni og hafa nokkur atriði í huga að auki:
Almenn þumalputtaregla
Almenna reglan er sú að rétt fjarlægð sé á bilinu 20-30 tommur. Þetta skiptir sköpum til að draga úr augnþreytu og gerir þér kleift að einbeita þér þægilega. Auk þess hentar þetta bil flestum meðalstórum skjám og sjónþörfum.
Helstu atriði sem þarf að hafa í huga
- Skjástærð: Stærri skjár krefst yfirleitt meiri fjarlægðar.
- Upplausn: Skjáir með háa upplausn gera þér kleift að sitja nær vegna aukinnar skerpu.
- Persónuleg sjón: Ertu sjónskert/ur eða með einhver augnvandamál? Þá þarftu að fá þér skjá með sérsniðnum stillingum.
- Tegund vinnu: Vinnur þú oft að verkefnum sem fela í sér mikinn lestur? Þá ættir þú að hafa skjáinn aðeins nær, en myndvinnsluverkefni krefjast víðara sjónsviðs.
Að stilla fjarlægð skjásins fyrir aukin þægindi
Með því að stilla fjarlægð skjásins nærðu bestu þægindum og dregur úr álagi. Hér eru nokkur hagnýt skref fyrir kjörna vinnuvistfræðilega uppsetningu.
Hagnýt ráð við uppsetningu:
- Mældu fjarlægðina: Hér þarftu að mæla fjarlægðina með reglustiku. Gakktu úr skugga um að hún sé á bilinu 20-30 tommur.
- Athugaðu sjónsviðið: Þegar þú staðsetur skjáinn þarf allur skjárinn að vera sýnilegur án þess að þú þurfir að hreyfa höfuðið mikið. Athugaðu því sjónsviðið.
- Hæð: Staðsettu skjáinn í augnhæð eða aðeins neðar.
- Halli: Þú getur hallað skjánum aðeins upp á við til að fá eðlilegra og þægilegra sjónarhorn.
- 20-20-20 reglan: Ef þú vilt forðast áreynslu í augum skaltu fylgja 20-20-20 reglunni. Hvað er það? Þú átt að horfa á eitthvað sem er í 20 feta fjarlægð frá þér, og það í 20 sekúndur.
Ráð um staðsetningu skjás við mismunandi aðstæður
Hvernig staðsetur þú skjáinn eftir aðstæðum? Engar áhyggjur, við höfum nokkur ráð sem gera vinnuna afkastameiri og spara þér tíma:
Leikjauppsetning
Við skiljum að leikjaspilarar vilja finna fyrir meiri innlifun, en þeir ættu samt að halda 20-30 tommu fjarlægð til að draga úr hættu á áreynslu í augum. Þess vegna ættir þú sem leikjaspilari að fjárfesta í bogadregnum eða ofurbreiðum skjá, því þessir skjáir bjóða upp á víðara sjónsvið.
Skrifstofuvinna
Á skrifstofunni færðu stöðugt verkefni með ströngum skilafrestum. Vinnan getur krafist þess að þú sitjir klukkustundum saman við að gera skjölin fullkomin og fórnir þægindum þínum. Þess vegna er gott að stilla skjáina í þægilegt sjónarhorn og hæðina á skrifborðinu og stólnum til að halda vinnuvistfræðinni í lagi. Þannig þreytast vöðvarnir heldur ekki.
Fjölverkavinnsla með tveimur skjám
Ef vinnan þín snýst um að sinna mörgu í einu skaltu setja aðalskjáinn beint fyrir framan þig svo þú getir einbeitt þér að brýnu verkefnunum. Settu síðan seinni skjáinn í horn þar sem hálsinn þreytist ekki og þú getur skoðað heimildir eða aukaforrit.
Algeng mistök sem ber að forðast
- Forðastu að sitja of nálægt: Forðastu að sitja of nálægt eða of langt frá, því það leggur aðeins álag á augun og þú þarft að píra þau til að sjá vel. Haltu því þægilegri áhorfsfjarlægð.
- Ekki líta fram hjá vinnuvistfræðilegum þáttum: Ekki líta fram hjá vinnuvistfræðilegum þáttum; stillingar fyrir hæð og halla eru fyrir líkamlega vellíðan þína því þær draga úr bak- og hálsverkjum. Stilltu því skjáinn þannig að hann sé í augnhæð.
- Sjónskerðing: Reyndu að venja þig af því að nota skjái með mikilli glampa eða lélegri upplausn. Það veldur augnþreytu og höfuðverk, því er eindregið mælt með að kaupa skjái með endurskinsvörn.
- Taktu stuttar pásur: Vinnan er mikilvæg, en hvíld er jafn nauðsynleg. Stöðug skjánotkun veldur þreytu og álagi á augun. Hugsaðu því vel um sjálfa(n) þig.
Verkfæri og fylgihlutir fyrir betri vinnuvistfræði
Þú getur líka fengið þér eftirfarandi verkfæri og fylgihluti til að bæta vinnuvistfræðina hjá þér:
- Besta staðsetning skjásins: Til eru skjáarmar og skjástandar sem leyfa þér að stilla hæð og fjarlægð skjásins nákvæmlega svo þú eigir ekki í vandræðum með að sjá skjáinn.
- Fáðu þér blárrar birtu síu: Til að draga úr augnþreytu skaltu fá þér síur fyrir bláa birtu eða gleraugu með slíkri síu. Notaðu þau, sérstaklega þegar þú starir á skjáinn í marga klukkutíma.
- Vinnuvistfræðilegir stólar: Vinnuvistfræðileg skrifborð og stólar tryggja rétta líkamsstöðu og draga úr líkamlegu álagi.
- Fjárfestu í gæðum: Fáðu þér vandaðan skjá með stillanlegum valkostum sem auka þægindi og afköst.
Niðurstaða
Við vonum að þú skiljir hve mikilvægt er að halda 20-30 tommu fjarlægð frá skjánum. Gefðu þér því smástund til að stilla fjarlægðina frá skjánum núna og finndu muninn á þægindunum!”

Skildu eftir athugasemd
Öll ummæli eru yfirfarin áður en þau eru birt.
This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.