What is Refresh Rate on a Monitor?

Hvað er endurnýjunartíðni á skjá?

Endurnýjunartíðni, mæld í riðum (Hz), er mælikvarði á hversu oft skjár uppfærir myndina á sekúndu. Ef skjárinn þinn er til dæmis með 60 Hz endurnýjunartíðni er myndin á skjánum uppfærð 60 sinnum á hverri sekúndu.

Hver er góð endurnýjunartíðni fyrir leikjaspilun?

Skjáir með háa endurnýjunartíðni, til dæmis 144 Hz eða hærri, henta vel í aðstæðum á borð við leikjaspilun, þar sem þeir gera leikmanninum kleift að fylgjast betur og jafnara með hreyfingum á skjánum en skjáir með lægri endurnýjunartíðni. Svo há endurnýjunartíðni skiptir þó meira máli fyrir atvinnuleikmenn. Frjálslegri leikmenn geta yfirleitt komist af með lægri endurnýjunartíðni í tölvum sínum og skjám.

Er hærri endurnýjunartíðni betri fyrir augun?

Hærri endurnýjunartíðni skilar mýkri mynd á skjánum og dregur því úr álagi á augun. Aðrir þættir, svo sem birta og staðsetning skjásins, hafa þó meiri áhrif á augnheilsu þína en endurnýjunartíðni skjásins.


Fyrir hvert sem vinnan tekur þig.

Verslaðu núna